Skólinn
Fréttir

Jól í skókassa - síðasti skiladagur

9.11.2015 Fréttir

Mörg börn hafa fengið skókassa í skólanum til að útbúa gjafir í  „Jól í skókassa“ verkefninu. Nú þegar eru komnir nokkrir fallegir kassar fullir af gjöfum í skólann og vonandi koma fleiri.

Við viljum minna á að síðastu skiladagar  í skólanum eru í þessari viku.  Best er að skila þeim á skrifstofu skólans. Kassarnir verða fluttir úr skólanum föstudaginn 13. nóvember.

Gleðjum aðra og tökum þátt. Hvað söfnum við mörgum í ár? Þeir voru 111 í fyrra.