Skólinn
Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin - undankeppni

22.2.2016 Fréttir

Undankeppni fyrir lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2016 fór fram á bókasafni Valhúsaskóla í dag, 22. febrúar.

Tólf nemendur í 7. bekk lásu upp og stóðu sig allir með prýði.  Þeir fengu bókina Arftakann eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur að gjöf frá skólanum fyrir þátttökuna.

 

Tveir nemendur voru valdir til að taka þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fyrir hönd Grunnskóla Seltjarnarness, Valhúsaskóla. 

Þeir eru Haraldur Þórarinsson og Júlía Óskarsdóttir.  Auk þess var  Lovísa Davíðsdóttir Scheving valin sem varamaður.  Við óskum þeim góðs gengis í lokakeppninni og öllum nemendum sem tóku þátt til hamingju með frammistöðuna.

 

Lokahátíðin fer fram í Garðabæ, 15. mars n.k.