Skólinn
Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2016

14.3.2016 Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar verður haldin þriðjudaginn, 15. mars n.k., kl.17:00, í Kirkjuhvoli, Safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. 

Haustið 2006 hófst samvinna milli Garðabæjar og Seltjarnarness um lokahátíðina og er þetta því í tíunda sinn sem haldin er sameiginleg lokahátíð.

Upplestrarkeppnin hefst formlega ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16.nóvember. Þá hefst undirbúningur allra nemenda í 7. bekk.  Síðan eru valdir nemendur sem verða fulltrúar skólanna á lokahátíðinni.

Í ár lesa tólf nemendur frá sex skólum, Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla, Vífilsskóla og Valhúsaskóla.

Skemmtiatriði verða frá öllum skólunum.