Skólinn
Fréttir

Grunnskólakeppni í stærðfræði

7.4.2016 Fréttir

Stærðfræðikeppni grunnskólanemenda var haldin í Menntaskólanum í Reykjavík þann 8. mars síðast liðinn í fimmtánda sinn. Tilgangur keppninnar er að auka áhuga grunnskólanemenda á stærðfræði og auka samstarf á milli grunnskóla og framhaldsskóla

Valhúsaskóli hefur tekið þátt í keppninni frá upphafi. Að þessu sinni mættu 344 nemendur til keppni frá 19 skólum. Keppendur frá Valhúsaskóla voru 58 talsins. Allir keppendur okkar skóla stóðu sig með stakri prýði í keppninni.

Þrír nemendur skólans náðu einstaklega glæsilegum árangri og voru í verðlaunasætum.Í keppni fyrir 8. bekk hlaut Ómar Ingi Halldórsson, 7. KLV  5. sæti og Bjarki Daníel Þórarinsson, 8. RMÓ 4. sæti.

Í keppni fyrir 9. bekk hlaut Bergljót Sóllilja Hjartardóttir, 9. ÞHM 5. sæti.

Verðlaunaafhending fór fram á Hátíðasal Menntaskólans í Reykjavík sunnudaginn 3. apríl. Hún var afar vel sótt en um 120 gestir mættu. Kór Menntaskólans í Reykjavík sá um tónlistarflutning. Rektor skólans þakkaði fyrir gott samstarf með skólastjórum og stærðfræðikennurum grunnskólanna sem tóku þátt og síðast en ekki síst þakkaði hann grunnskólanemendum fyrir þátttökuna.

Stærðfræðikennarar, ásamt öllum kennurum Valhúsaskóla, eru afar stoltir af þátttakendum okkar.