Skólinn
Fréttir

Göngum í skólann 2016

5.9.2016 Fréttir

Miðvikudaginn 7. september, hefst Göngum í skólann verkefnið okkar og mun það standa til 20. sept. Þetta er í 10.  sinn sem Ísland er þátttakandi í þessu verkefni og stöðugt bætast fleiri skólar í hópinn. Við höfum verið með frá upphafi. Í fyrra voru yfir 60 skólar á landinu skráðir til leiks.         

Markmið verkefnisins er m.a. að:

·         hvetja til aukinnar hreyfingar

·         auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann

·         fræða nemendur um ávinning reglulegrar hreyfingar

·         að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.

·         að reyna að stuðla að vitundarvakningu fyrir vistvænan ferðamáta um hversu „gönguvænt“ umhverfið er.

 Við hvetjum foreldra til að fylgja yngstu börnunum, gangandi eða hjólandi og nota þá tækifærið og kenna þeim öruggustu leiðina í skólann. Allir bekkir fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestan árangur. Þær bekkjardeildir sem ná bestum árangri fá gull-, silfur- eða bronsskóinn til varðveislu þar til næsta Göngum í skólann keppni verður í vor. Auk þess fær sá árgangur sem besta heildarþátttökunni nær GRÆNA SKÓINN.