Skólinn
Fréttir

„Jól í skókassa“ er byrjað á ný. 

28.10.2016 Fréttir

Líkt og undanfarin ár tekur Mýrarhúsaskóli þátt í verkefninu „Jól í skókassa“. Það felst í því að fá börn og fullorðna til þess að gleðja börn í Úkraínu sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir sem eru settar í skókassa. Hægt er að fá tóma skókassa í skólanum og eru þeir við útgöngudyr skólans á tveim stöðum meðan birgðir endast. 

Í fyrra söfnuðust 132 jólagjafir. Spennandi verður að fylgjast með hve mörgum skókössum við söfnum í ár. Síðasti skiladagur í skólanum er fimmtudaginn 10. nóvember.

Þetta er kjörið verkefni fyrir fjölskylduna að vinna saman, vinahópa og gott efni á bekkjarkvöld og fleira. Það er gaman að gleðja aðra.

Nánari upplýsingar og myndir frá afhendingu gjafanna má nálgast á: www.kfum.is/skokassar

Bréf um verkefnið var sent til foreldra í gegnum Mentor.