Móttaka á nýju starfsfólki
Móttaka á nýju starfsfólki
1. Þegar starfsmaður er ráðinn skal skólastjóri/aðstoðarskólastjóri sjá um eftirfarandi:
r Skrifa undir ráðningarsamning við nýjan starfsmann
r Sýna nýjum starfsmanni húsakynni skólans
2. Á hverju hausti skal halda kynningu fyrir nýtt stafsfólk þar sem farið er í eftirfarandi atriði. Um kynninguna sjá: skólastjóri aðstoðarskólastjóri, trúnaðarmaður, verkefnastjóri tölvumála, og húsvörður. Ef margir hefja störf er hægt að hafa fund annars einstaklingskynningar.
Ef starfsmaður er ráðinn á miðju skólaári skal skólastjóri/aðstoðarskólastjóri fara yfir eftirfarandi atriði með nýjum starfsmanni. Skólastjóri ber ábyrgð á að kynning sé haldin.
Skólastjóri/aðstoðarskólastjóri sér um:
r Kynningu á stefnu skólans
r Kynna skipurit skólans
r Kynna réttindi og skyldur starfsmanna skv. kjarasamningi (s.s. reynslutímann, uppsagnir, veikindarétt, lífeyrismál, símenntunarákvæði, vinnumenningu, vinnuvernd, starfsreglur, trúnaðar- og þagnarskyldu o.fl.)
r Veita nýjum starfsmönnum upplýsingar um vinnureglur, vinnufyrirkomulag, vinnutíma og starfsmannafundi
r Fara yfir starfslýsingu og hæfniskröfur starfsins við starfsmanninn
Aðstoðarskólastjóri sér um
r Kynningu á uppbyggingarstefnunni
r Kynningu á skipulagi matarmála í skólanum bæði fyrir nemendur og starfsfólk
r Fara yfir hagnýt atriði, s.s. kaffitíma, fatnað, hefðir og umgengni í skólanum
r Kynna brunavarnir skólans, fyrstu viðbrögð við slysum og skráningu á slysum
Verkefnastjóri tölvumála sér um:
r Kynningu á tölvukerfi skólans, tölvupósti, geymslu gagna, prentunarmála o.fl.
r Kynningu á vefsíðu skólans
r Kynningu á þjónustu Skyggnis
r O.s.frv.
Trúnaðarmaður sér um að:
r Kynna stéttarfélag ( St.Sel, Efling) og trúnaðarmenn á vinnustaðnum
r Kynna skólastefnu,eineltisáætlun og jafnréttisstefnu og aðra stefnumótun bæjarins er varðar skólamál
Húsvörður sér um:
r Að afhenda nýjum starfsmanni lykla (kvittað fyrir hjá húsverði), lykil af skápum og öðru sem þurfa þykir.
Ef starfsmaður er af erlendum uppruna og skilur illa íslensku á að fá túlk til þess að vera viðstaddan þessar kynningar til þess að tryggja að starfsmaðurinn geri sér ljóst skyldur sínar og réttindi.
3. Á fyrsta starfsmannafundi skal skólastjóri/aðstoðarskólastjóri sjá um að:
r Kynna nýjan starfsmann fyrir starfsmönnum skólans
4. Á starfsdögum fyrir skólabyrjun skal deildarstjóri sérkennslu og deildarstjóri stigs sjá um að
r Kynna þann nemendahóp sem starfsmaðurinn mun sinna, þar sem það á við, viðeigandi úrræði og stoðþjónustu
5. Í lok reynslutímann (lok október/byrjun nóvember) tekur skólastjóri/aðstoðarskólastjóri nýliðann í viðtal og fer yfir:
r Reynslutímann (fyrstu þrjá mánuðina í starfi)
r Þennan gátlista
r Endurgjöf frá þeim sem hefur starfað mest með starfsmanninum
r Annað.
