Grunnskóli Seltjarnarness: Mýrarhússaskóli - Valhúsaskóli
Móttaka nýrra kennara

Móttaka á nýjum kennurum

 

Móttaka á nýjum kennurum

 

1.  Þegar kennarinn er ráðinn skal skólastjóri/aðstoðarskólastjóri sjá um eftir­farandi:

 

Skrifa undir ráðningarsamning við nýjan kennara

Sýna nýjum kennara húsakynni skólans

 

2.  Á hverju hausti skal halda kynningu fyrir nýja kennara þar sem farið er í eftirfarandi atriði.  Um kynninguna sjá: skólastjóri aðstoðar­skólastjóri, trúnaðar­maður kennara, verkefnastjóri tölvumála, og húsvörður.  Ef margir hefja störf er hægt að hafa fund annars einstaklingskynningar. 

 

Ef kennari er ráðinn á miðju skólaári skal skólastjóri/aðstoðar­skóla­stjóri fara yfir eftir­farandi atriði með nýjum kennara. Skólastjóri ber ábyrgð á að kynning sé haldin.   

 

Skólastjóri/aðstoðarskólastjóri sér um:

Kynningu á stefnu skólans

Kynna skipurit skólans

Kynna réttindi og skyldur kennara skv. kjarasamningi (s.s. reynslutímann, uppsagnir, veikindarétt, lífeyrismál, símenntunarákvæði, vinnutímaramma, vinnu­skýrslu, stunda­töflu, undirbúningstíma, vinnumenningu, vinnuvernd, starfsreglur, trúnaðar- og þagnarskyldu o.fl.)

Veita nýjum kennara upplýsingar um vinnureglur, vinnufyrirkomulag, vinnutíma og starfsmannafundi

Kynna útfyllingu á vinnuskýrslu og vinnutímaramma kennara í upphafi skólaárs

Fara yfir starfslýsingu og hæfniskröfur starfsins við kennarann, kynna erindisbréf og ræða starfshætti í væntanlegu starfi

Kynna aðalnámskrá grunnskóla/skólanámskrá/handbók foreldra (Vitann)/skóladagatal

Kenna nýjum kennara vinnubrögð við skráningu í skólanum t.d. Mentor

Kynna þjónustu Fræðslusviðs Seltjarnarness

Kynna þjónustu deildarstjóra sérkennslu og sálfræðinga

Kynna þjónustu heilsugæslu og aðra þjónustuaðila skólans

Sér um að allar upplýsingar sem fram koma á kynningarfundinum verði kennurum aðgengilegar á samskrá skólans. 

 

Aðstoðarskólastjóri sér um

Kynna stefnu skólans um samskipti milli heimila og skóla ásamt skráningu í Mentor

Kynna rétt nýútskrifaðra kennara á leiðsagnarkennara

Kynna fyrir nýútskrifuðum kennurum hlutverk leiðsögukennara

Kynna fyrir nýútskrifuðum kennurum hlutverk námsráðgjafa

Kynna fyrir kennurum hvernig móttöku nýrra nemenda er háttað

Kynna samvinnu skóla og leikskóla

Kynningu á uppbyggingarstefnunni

Kynningu á skipulagi matarmála í skólanum bæði fyrir nemendur og kennara

Fara yfir hagnýt atriði, s.s. kaffitíma, fatnað, hefðir og umgengni í skólanum

Kynna brunavarnir skólans, fyrstu viðbrögð við slysum og skráningu á slysum

 

Verkefnastjóri tölvumála sér um:

Kynningu á tölvukerfi skólans, tölvupósti, geymslu gagna, prentunarmála o.fl.

Kynningu á vefsíðu skólans

Kynningu á því hver setur inn á vefsíðu skólans

Kynningu á þjónustu Skyggnis

O.s.frv.

 

Trúnaðarmaður sér um:

Kynna stéttarfélag (KÍ/KMSK) og trúnaðarmenn á vinnustaðnum

Kynna skólastefnu,eineltisáætlun og jafnréttisstefnu og aðra stefnumótun borgarinnar er varðar skólamál

 

Umsjónarmaður sér um:

Að afhenda nýjum kennara lykla (kvittað fyrir hjá umsjónarmanni), lykil af skápum og öðru sem þurfa þykir. 

 

3.  Á fyrsta starfsmannafundi skal skólastjóri/aðstoðarskólastjóri sjá um að:

 

Kynna nýjan kennara fyrir starfsmönnum skólans á fyrsta starfsmannafundi

Vera búinn að útvega nýjum kennara leiðsagnarkennara (sé þess nokkur kostur) og skilgreina hlutverk og ábyrgð leiðsagnarkennara

 

4.  Aðstoðarskólastjóri skal fyrir skólasetningu sjá um að:

 

Kynna nýjan kennara fyrir foreldrum í fréttabréfi, tölvupósti eða á heimasíðu

 

5.  Á starfsdögum fyrir skólabyrjun skal deildarstjóri sérkennslu og deildarstjóri stigs sjá um að

Kynna nemendahópinn, viðeigandi úrræði og stoðþjónustu

 

6.  Í lok reynslutímann (lok október/byrjun nóvember) tekur skólastjóri/­aðstoðar­skóla­stjóri nýliðann í viðtal og fer yfir:

 

Reynslutímann (fyrstu þrjá mánuðina í starfi)

Þennan gátlista

Endurgjöf frá leiðsagnarkennara (ef nýliði á í hlut), endurgjöf frá stigstjóra, deildarstjóra eða öðrum

Annað.


Skólinn



Þetta vefsvæði byggir á Eplica